Laugardagsmorgnar eru í mínum huga besti tími vikunnar. Þá vakna ég nokkuð snemma og get fengið mér morgunmatinn í rólegheitum og lesið blöðin í góðu næði yfir kaffibolla (bollum) sem jafnan er grænn Bragi. Í morgun var engin undantekning, Bragi bragðaðist vel og hvorugt fríblaðana var í fríi. En það sem vakti mig til umhugsunar í morgun var annars vegar allar heilsíðu- og heilopnuauglýsingarnar frá hinum og þessum verslunum og hins vegar allar greinarnar frá hinum og þessum spekingum um kreppuna sem nú er að hellast yfir þjóðina. Ef ég les þetta í samhengi þá velti ég því fyrir mér hvað sé á bak við auglýsingarnar. Er það örvænting stórra verslanakeðja sem sjá fram á það að ef ekki er hægt að blekkja neytendur til að koma og versla muni þeir rúlla. Eða eru þetta verslanir sem eiga eftir að gera það gott af því neytendur hafa næg fjárráð og geta verslað að vild. Svo ekki sé minnst á brelluna sem heyrðist í kvöldfréttunum í gær - " farið hamstra". Ég ætla ekki að fara í verslunarleiðangur í dag eða næstu daga, ég ætla ekki að hamstra, ég ætla að halda fast um budduna ( þó ég hafi verið svo heppin að fá launahækkun rétt áður en kreppunni var lýst yfir). Kvöldmaturinn er slátur að gömlum og góðum sið, ég splæsti í rófur í lágvöruverðsversluninni sem ég fór í í gær af því það á svo vel við með slátri. Þegar ég las svo auglýsinguna aftan á Fréttablaðinu þar sem auglýstur var borðbúnaður af fínni gerð ásamt prjónum til að borða með þá var mér nú allri lokið, ég sé okkur ekki í anda borða slátrið með prjónum.
Flokkur: Dægurmál | 4.10.2008 | 10:29 (breytt kl. 10:30) | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
Jan. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
336 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Ljósmæðrafélag Íslands Félagið mitt sem berst við tröllin þessa dagana
- OA samtökin á Íslandi Samtök sem gefa nýja von þegar allt annað hefur brugðist
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.