Ég er ein þeirra sem fékk sent í tölvupósti upplýsingar um sérafgreiðsluna hjá þeim sem tóku lán(lesist rán) til að fjármagna kaup á hlutabréfum í fallítt banka. Reiði mín var mikil - svo mikil að ég man nú ekki annað eins. Ekki minnkaði reiðin þegar ég hlustaði/horfði á kvöldfréttir þar sem fullyrt er að þetta sé heilagur sannleikur. Og svo kemur þetta frá norðmanninum ! Enginn brást við þegar viðvaranirnar komu, enginn gerði neitt þegar skýrslur bárust um að bankarnir væru á hálum ís.
Er nokkuð skrítið að maður spyrji hverjum sé nú treystandi, þeir sem fengu sérmeðferðina og bera væntanlega ábyrgð að hluta til hvernig komið er, eru ennþá að stjórna eftir því sem manni skilst. Er ekki allt í lagi heima hjá þér ? Er stundum spurt þegar einhver nær að ganga fram af einhverjum. Eigum við ekki heimtingu á að mönnum sé skipt út þegar þeir hafa gerst sekir um svona skammarstrik (þori ekki að taka dýpra í árinni - en það ætti samt við)
Bankinn minn tók af sparifénu mínu 15-20 %, hvað á að gera við þann pening? Er hann kannski notaður til að dekka "ránin" sem tekin voru til hlutabréfakaupa? Ég á ekki erfitt með að fyrirgefa það sem ekki er fyrirséð eða gerist óvart, en það sem gert er af ásetningi á ég afar erfitt með að fyrirgefa. En sé það satt að í bankanum mínum starfi ennþá þeir sem fengu sérmeðferð þá er ekki langt í að ég flytji allt mitt. Spurningin er bara, hverjum er hægt að treysta ?
Hefði átt að vera búið að stoppa ykkur fyrir löngu" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
33 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Ljósmæðrafélag Íslands Félagið mitt sem berst við tröllin þessa dagana
- OA samtökin á Íslandi Samtök sem gefa nýja von þegar allt annað hefur brugðist
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.